Það sem við förum í á námskeiðinu er m.a. að kynnast óþolsvöldum í mataræðinu og finna út hvaða fæða hentar okkar líkama, koma jafnvægi á þarmaflóruna og losa okkur við langvarandi bólgumyndun.
Nútíma mataræði getur valdið bólgum í líkamanum og ef blóðsykurinn fer úr jafnvægi þá getur heilsan farið í klessu.
Ef blóðsykur er í ójafnvægi eða ef ójafnvægi er á bakteríum í þarmaflórunni geta bólgur farið að myndast í líkamanum.
Birtingarmynd þeirra er m.a. liðverkir, vöðvaverkir, „stíflað nef“ eða bólgur í ennis- og kinnbeinsholum og tilfinningin er alltaf eins og maður sé stíflaður, útbrot og kláði í húð, alls konar meltingavandamál, uppþemba og loftgangur og krampar.
Við munum byrja á markmiðasetningu og svo tökum við út ákveðna fæðu úr mataræðinu sem við munum svo bæta inn hægt og rólega eftir 2-4 vikur.
Yfir allt tímabilið verður næringarfræðsla þar sem verður m.a. farið yfir
o Innihaldslýsingar
o Hitaeiningar/Kaloríur
o Óþolsvaldar
o Kolvetni
o Prótein
o Fita
o Sykur og gerviefni
o Bætiefni
o Vatn
o Koffín
o Matur sem meðal
o Megrunar/mataræðis kúrar – virka þeir eða ekki?
Þetta er hugsað sem langtíma lausn en ekki eitthvað sem virkar bara á meðan námskeiðinu stendur heldur munum við læra að gera þetta að lífsstíl án allra öfga.
Lífið á að vera skemmtilegt og við viljum geta borðað hollan og góðan mat sem auðvelt er að njóta án þess að lifa stanslaust í verkjum og óþægindum ❤