Ég heiti Lea og mín ástríða liggur í að nota mat sem meðal og hjálpa öðrum að öðlast orkumikið og verkjalaust líf.
Árið 2021 útskrifaðist ég úr heilsumarkþjálfun frá Institute for Integrative Nutrition – IIN

Í mörg ár hef ég barist við kviðverki, ristilkrampa og ógleði ásamt þreytu og máttleysi og alls kyns óútskýrðum verkjum í öllum líkamanum.
Ég var farin að halda að þetta væri bara eitthvað sem ég þyrfti að sætta mig við því allar rannsóknir sem ég fór í eftir þessar endalausu læknisheimsóknir sögðu að það væri ekkert að mér – ég gæti ekki verið hraustari.
Ehh! Mér leið nú ekki þannig!
Líkamlega og andlega leið mér hræðilega og ég var við það að fara að gefast upp.
Hvernig gat allt verið að þegar ekkert var að?!?
Einn daginn fékk ég svo svakalega verki í kviðinn að ég grét af sársauka.
Ég fór upp á bráðamóttöku og eftir skoðun var ég send í aðgerð.
Það kom í ljós að ég var með ristilpokabólgu, sem er sýking í svokölluðum ristilpokum sem höfðu myndast út af miklum þrýsting í ristli. Fór svo eftir aðgerðina í ristilspeglun og kom þar í ljós að ég var líka með sepa í ristli en hann getur þróast yfir í krabbamein ef hann er ekki uppgötvaður og fjarlægður.
Ég fékk nett sjokk og ákvað að það hlyti að vera leið til að laga mig!
Ég fór að skoða í kringum mig og fann loksins lausnina.
“Maturinn” sem ég var að borða var að drepa mig.
Og ekki bara maturinn heldur lífstíllinn og viðhorfið…
Eftir að hafa prófað mig áfram í að nota mat sem meðal er ég orðin miklu betri og gat til að mynda farið að ganga á fjöll sem ég hef ekki geta gert síðan ég var krakki.
Ristilkramparnir og ógleðin eru alveg horfin og orkan er miklu meiri. Andlega hliðin tók líka u-beygju eftir breytt mataræði og mikla sjálfsvinnu og er ég miklu glaðari og tilbúnari að takast á við það sem lífið býður upp á – gott eða slæmt.